Þannig er það.

vg_bleiktÉg rakst á ansi skemmtilega grein á múrnum.is þar sem einn af aðal hugmyndasmiðum vinstri grænna, Ármann Jakobsson nauðgaði mér í augntóftirnar með svartsýnisrausi sem er týpíst fyrir marga pólitíkusa í hans flokk. Í hans hugarheimi er svifrykið í Reykjavík alla að drepa og velmegun á Íslandi er komin út í öfgar. Það skín í gegn hversu gramur hann er að geta ekki beitt valdi sínu á fólk sem dirfist að eiga jeppa eða önnur ökutæki sem eru honum ekki þóknanleg. Hann hatar nagladekk og skilur hvorki upp né niður í því að fólk skuli vera svo siðspillt að ferðast um einsamalt og jafnvel í glæsibifreið. Honum líkar greinilega ekki allar þær framkvæmdir sem eiga sér stað til að bæta samgöngur í borginni og talar í sömu grein um að það þurfi að bæta samgöngur. Hann sér örugglega fyrir sér að aðeins milljarðamæringar munu aka um nýju göturnar á stífbónuðum landkrúserbifreiðum og dagdraumar hans eru um hversu mikið hann langar að skattpína þessar frekjur sem hafa unnið hörðum höndum að auðsöfnun á kostnað allra annara.

Þegar stóri fundur vinstri grænna var um daginn kom aðeins einn á hjóli eins og frægt er orðið. Sjálfur tók blessaður maðurinn stætó sem er gott hjá honum en kemur mér ekki rassgat við frekar en hvernig nærbuxum einhver frænka mín er í. Ármann "skúbbaði" því reyndar að vinstri grænir hefðu samt verið til fyrirmyndar því það hefðu svo margir troðið sér í bílana sem komu á staðinn. Það sér það nefnilega hver heilvita maður að það sparar svo mikla orku ef Steingrímur J. fer á jeppanum sínum og sækir Ögmund, fer svo og sækir Kolbrúnu og koll af kolli þangað til jeppinn er fullur í stað þess að hver og einn drullist bara af stað.

Hugmyndir Dr. Ármanns eru kallt dæmi um neyslustýringu af versta tagi. Skattpína fólk til þess að fara leiða sinna eins og yfirvöld vilja og beina almenningi eins og sauðfé í þessa átt en ekki hina á tilfinningalegum en ekki efnislegum forsendum. Það er nú þannig að fólk er ekki eins mikil fífl og sumir vilja meina en ef þú setur x við u er framtíðin ljós, troddu þér inn í skattpínda bíltík með fullt af öðru fólki hvort sem þér líkar betur eða verr, ja eða vertu til fyrirmyndar og taktu strætisvagn ríkisins  ef þú vilt vera stjónvöldum þóknanleg(ur). Þetta væri örugglega almenningi til hagsbóta. "Við þurfum nýja velferðarstjórn"


Góð hugmynd.

Náttúrufræðistofnun veður reyk í þetta skipti. Við erum að tala um að fjarlægja eitthvað sem er orðin plága og mörgum til ama. Móðir Þorkells vinar míns sagði mér nú einhverntíma að það hafi stundum verið mávur í matinn þegar hún var ung. Mávar eru að mínu mati ekkert annað en rottur með vængi.

Náttúrufræðistofnun virðist ætlast til þess að fólk sem lætur máva fara í taugarnar á sér leggji fyrir þá gildru, seti eitthvað kjet í garðinn hjá sér og njósni um mávanna sem gæða sér á því og láti loks til skarar skríða og reyni að ná sem flestum til að ræða málin og reyna að fá þá til að hætta nú þessari vitleysu. 

Ég er með tvær hungmyndir. Önnur felst í því að veiða hval, draga hann á land og sjá hvort það langi ekki einhvern máv í svoleiðis. Ef það er raunin væri hægt að fylla hvalinn af sprengiefni og sprengja máv(ana). Með þessu væri verið að drepa marga í einu og skapa skemmtilega atvinnu fyrir sprengjusérfræðinga á Íslandi sem venjulega fá bara að strjúka ryðguð, óvirk og boring tundurdufl frá árinu 1700. Hugsa sér draumadjobb. Hin hugmyndin er að borga eldriborgurum fyrir að skjóta máv og stofna í kring um það klúbba og vera með virka samkeppni milli klúbba með því að veita vegleg verðlaun fyrir besta árangurinn.

NEI. Það verður að sjálfsögðu ekki gert neitt skemmtilegt. Það verður bara eitthvað hyski í t.d borgarstjórn að velta þessu fyrir sér fram og til baka þangað til að öðru hverju barni verður stolið af soltnum mávaflokk. Vissulega er líka fólk sem núþegar notar tækifærið og kennir því um að bæarbúar séu svo miklir sóðar og þykist vera að auglýsa áhuga sinn á náttúruvernd með því móti.


mbl.is Náttúrufræðistofnun leggst gegn fugldrápi með svefnlyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já.

IMG_1717 Uppþvottavélin okkar bilaði. Guðmundur Úlfar kom til að heimta jólate og kvaðst ætla að laga uppþvottavélina. Það tókst ekki betur en svo að hann ruglaðist á ruslaskápnum og uppþvottavélinni eins og glöggir lesendur sjá. Hann er vélstjóri og geri ég fastlega ráð fyrir því að í vélskólanum sé sértök áhersla lögð á að láta sjást iðnaðarmannslega í rassaskoruna, annað væri lélegt. Einnig vakti athygli mína að Guðmundur tuðaði mjög viðgerðarmannslega við sjálfan sig við þessar athafnir eins og þeir allraverstu eiga það til að gera. Guðmundur vinnur á Grundartanga sem passar honum einkar vel og verður hann meira "grundartangs" með hverjum deginum.

Hann er góður maður. 


Jafnréttislögreglan.

Photo 8 Nú er svo komið að ég er búinn að glápa furðulostinn í gegnum nýja jafnréttisfrumvarpið og verð ég að segja að aðra eins dómsdagsvitleysu hef ég ekki séð lengi. Ef frumvarpið er skoðað má sjá að flest allt byrjar á  "Bann við", sem ætti svosem ekki að koma neinum á óvart miðað við þróunina undanfarið og þann ömurlega pólitíska réttrúnað sem vakað hefur eins og vofa yfir stjórnmálum á Íslandi undanfarið.

 Nú á að veita jafnréttisráði lögregluvald yfir fyrirtækjum og pína öll fyrirtæki sem hafa 25 eða fleiri starfsmenn til að búa til jafnréttisáætlun, bera hana undir jafnréttisráð og vera undir eftirliti hvort og hvernig henni er framfylgt. Ef að fyrirtæki búa ekki til þessa áætlun getur jafréttisráðið beitt dagsektum sem nema allt að 50.000 krónum á dag, sem að sjálfsögðu renna í hinn frjársvelta ríkissjóð eins og svo margt annað. Kostnaður vegna ráðsins greiðist einnig úr ríkissjóði þannig að ráðið fær laun í minni óþökk en á minn og annara kostnað. Að sjálfsögðu fær femínistafélag íslands ásamt öðrum kvennréttindafélögum að skipa aðila í ráðið þannig að Íslendingar standa nú frammi fyrir því að hópur öfga-femínista er kominn með talsmann í þessari jafréttislögreglu og miðað við það sem ég hef lesið og heyrt frá háværustu meðlimum femínistaklúbbsins verður það talsmaður femínista sem á eftið að valda sem mestum usla í þessu ráði og því miður verður mörgu hlýtt sem mun undan rifjum hennar(væntanlega) renna. Það má að sjálfsögðu benda á að aðrir fá ekki að skipa í ráðið eins og t.d félag ábyrgra feðra. Allir vita að það er ekki í tísku að fjalla um það sem hallar á karlmenn. Þeir mega kannski koma á svokallað jafréttisþing, sem haldið er annaðhvert ár.

Í 29gr. þessa frumvarps er kveðið á um að sá sem hannar eða birtir auglýsingu verði að passa uppá það að auglýsingin sé ekki öðru kyninu til minnkunar. Mér dettur strax í hug nokkrar auglýsingar sem gætu flokkast sem slík niðuræging samkvæmt nokkrum háværum aðilum sem nú hafa verið gefin völd. Nefna má auglýsingar þar sem kvennmannsrass kemur fyrir, eins og hjá ölgerðinni, always ultra og rassa-renault auglýsingunni. BANNAÐ!! Sem betur fer eiga sjónvarpstöðvar og blöð eftir að hætta að birta slíkt klám því allir vita að karlar upp til hópa þurfa að halda aftur af sér til að beita konur ekki hræðilegu ofbeldi eftir að hafa rekið augun í slíkan ófögnuð. Ekki verður langt þangað til að t.d bleikt&blátt verður gert upptækt í nafni jafnréttis og annað sem landsmönnum hefur staðið til boða um árabil.

Það er margt annað í þessu frumvarpi sem er miður og óvandað. Konur eru sterkur og duglegur hópur fólks sem getur alveg komið sér áfram á eigin verðleikum og ástandið fer batnandi hvert sem maður lítur. Að setja lög um að fyrirtækjum sé skylt að ráða konur í stjórn þeirra er hallærislegt og ekkert annað en réttrúnaðarfasismi. Allar konur með einhverja sjálfsvirðingu hljóta að vera á móti slíku, að sitja í stjórnum og vera í áhrifastöðum vegna þess að það sé skylda. Mér finnst lítið gert úr konum að halda að þær vilji sita í áhrifastöðum vegna þess eins að það er skylda, að koma í partý sem manni var ekki boðið í. Það er bara verið að hrófla við jákvæðri þróun sem er á réttri leið.

 

 

 

 

 

 

 


hehe.

ps. - og ég veit vel að það er til slatti af frábærum karlmönnum sem er meinilla við þetta efni. Hinir eru bara of margir - sem annaðhvort sækja í þetta efni eða verja efnið - hvort sem þeir sækja í það sjálfir eða ekki. Býst alveg eins við því að hingað komi inn fjöldinn allur af kommentum frá karlmönnum sem sárnar þetta "minni karla" en... bottom line... Raunveruleikinn er að það er mikil eftirspurn eftir þessu efni og karlmenn verða mældir eftir því hvernig þeirra raddir hljóma - Og hvaða raddir eru háværastar?

-Katrín Anna, talskona femínistafélagsins

 

Ég hafði sjálfur haft frekar hátt um ýmislegt á blogginu hennar þannig að hún er búin að mæla mig út sem einn af þeim óreglumönnum sem skoða og reyna að verja Barnaklám, Klám þar sem eru tilvísanir í barnaklám, Ofbeldisfullt klám og Dýraklám. 

Hún er nú búin að eyða flestum ef ekki öllum mínum færslum á hennar síðu og banna mig frá því að setja inn athugasemdir. Forsjárhyggja Katrínar gæti svosem orðið til þess að ég finni mér eitthvað betra að gera en að rífast við hana sem er svosem eins og að rökræða við brauðrist eða kertastjaka. 

Jæja, hef ekki tíma til að pikka á lyklaborðið eins og lögregluþjónn á 5.áratugnum. Þar er sóað tíma sem annars færi að sjálfsögðu í að skoða dýraofbeldisklám áður en hún Álfheiður mín kemur heim.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband